Atburðarteljari

Auglýsing

Jólin!

8D

1.) Fyrra nafn: Urður

2.) Milli nafn: María

3.) Föðurnafn: Sigurðardóttir

4.) Gælunöfn: Misslæm og missminnisstæð. Urður skurður hefur verið nokkuð langlíft. Einnig: Urta, Úrsúla, Bambi, Uvvu og Úrdúr.

5.) Tannbursti: Bleikur og hvítur

6.) Bekkur:Enginn bekkur, er á 4. ári í ME

7.) Greindarvísitala: Aldrei tekið alvöru greindarvísitölupróf og próf á netinu eru ekki rétt reiknuð út – enda ef greindarvísitölupróf myndi leka á netið væri það sama og að eyðilggja það og þá þarf að gera það alveg upp á nýtt. Langar reyndar mikið að vita hver greindarvísitalan mín væri… kannski er ég of mikil ljóska fyrir svona próf? Svara öllu vitlaust

8.) Skóli: Menntaskólinn á Egilsstöðum (ME)

9.) Kyn: Kvenkyn

10.) Afmælisdagur: 4. apríl

11.) Stjörnumerki: Hrútur

12.) Fæðingarstaður: Östra sjukhuset, Göteborg, Sverige

13.) Hæð: Samkvæmt málbandi: 161,5 síðan í 9. bekk en ég trúi því ekki! Í samanburði við mömmu mina hef ég víst stækkað síðan í 9.bekk…. ég viðurkenni ekki að ég sé minni en allavega 164!

14.) Háralitur: Ljóst.. bíddu ég fann einhverntíman nákvæmaranafn.. það var smjörlitað eitthvað. Allavega.. það er ljóst.

15.) Augnlitur: Óútskýranleg blanda af svörtum, bláum og gráum.

16.) Hæð ennis: Hvar endar ennið?

17.) Áttu kærasta: Jibb :)


UPPÁHALDS:

18.) Bíómynd: Fer rosalega eftir skapi. The Wall, Moulin Rouge, Forrest Gump, Wayne’s World, Monty Python myndirnar, Juno, Notebook, 

19.) Hljómsveit/söngvari: Queen, Pink Floyd, Bítlarnir, Sigur Rós, Rolling Stones, Dikta, Pétur Ben, Lay-Low, Korn, Chopin, Rachmaninov, Tchaikovsky, Baggalútur, Coldplay, R.E.M., Bruce Springsteen, Danny Elfman, David Bowie, Deep Purple, Jethro Tull, Kiss, Louis Armstrong, Sex Pistols, Spilverk Þjóðanna, Utangarðsmenn, Sugar Cubes, Tenacious D, 6íjazz, kvikmyndatónlist, jazz, klassísk tónlist og örugglega fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu.

20.) Geisladiskur: News Of The World og Sheer Heart Attack með Queen. The Wall með Pink Floyd.

21.) Lag: Is There Anybody Out There – Pink Floyd, Rhapsody on a theme by Paganini – Rachmaninov, of mörg lög mðe Queen (allt eftir skapi) og fl.

22.) Leikari: Mike Mayers, Johnny Depp, Tom Hanks

23.) Leikkona: Nicole Kidman

24.) Tegund af tónlist: Margar tegundir af rokki (t.d. gullöld, rock’n’roll, prog rock, folk rock), jazz, klassísk tónlist  (aðallega rómantísk og nútíma klassík)., nýtt rokk líka, íslensk tónlist (sérstaklega í eldri kantinum... ekki íslensk balltónlist og íslenskt poppp samt...), ´bíómyndatónlist.


25.) Bók: Firestarter, Pet Sematary, Misery og Carrie – Stephen King, Alkemistinn og Veronika ákveður að deyja – Paulo Coelho, His Dark Material – Phillip Pullman

26.) Ístegund: súkkulaði-mint

27.) Litur: Grænn

28.) Vikudagur: Allir dagar fyrir utan miðvikudaga!

29.) Mánuður: ágúst, október, nóvember, desember og apríl

30.) Frí: Jólafrí og páskafrí

31.) Sjónvarpsþáttur: House MD og ýniskonar anime

32.) Gæludýr: Mía (kisan mín) og Sammi (Sámur, hundurinn minn)

33.) Buxur: ekkert toppar víðu Blendbuxurnar mínar (með stóru vösunum) sem eru núna ónýtar --- og ég sakna þeirra enn :'(

34.) Skyrta/bolur: Græna, rennda hettupeysan mín með kassettumunstrinu og ipod-hvað? peysan mín

35.) Sokkar: allir, ef þeir passa við fötin

36.) Skór: Svörtu skórnir mínir

37.) Skartgripur: Eftir að ég týndi flotta flotta flotta hringnum mínum sem ég fékk í fermingargjöf hætti ég að nota skartgrip

38.) Bestu vinir: Ási, Sara Björk, Sólveig Moràvek, Hrefna Rún, Gulli, Gunnar, Siggi, Stebbi, Kristján Ari, Kristinn, Magnús Búi, Leif, Eiríkur, Lára, Dagrún, Tíbrá, Jón Ingi

39.) Brjálaðasti vinurinn: Ási

40.) Kjánalegasti: Hrefna Rún og Ási

41.) Ljúfasti: Siggi

42.) Svalasti: tjaa… jú þið eruð öll svöl ;)

43.) Heitasti: "Ef ég dey, dey ég úr þokka!" - Sólveig

44.) Gáfaðasti: Ási, Kristinn og Sara Björk

45.) Tregasti: Ég er sú trega í vinahópnum.

46.) Krúttlegasti: Ási :D

47.) Líklegastur til að ná árangri: Stæstur hluti af þeim öllum held ég bara

48.) Þarfnast góðs maka: Ég óska nú engum vonds maka!

49.) Líklegastur til að eignast milljón krakka: Sólveig, Hrefna Rún, Magnús Búi

50.) Líklegastur til að eignast engin börn: Hrefna Rún (já hún passar í bæði...)

51.) Líklegastur til að verða samkynhneigður: Ég veit það ekki, ég hef eiginlega ekki hugmynd

52.) Ef þú gætir farið á stefnumót með hverjum sem væri: Ég veit það ekki

53.) Coke eða Pepsi: Æ ég veit ekki, finnst hvorugt það gott að ég geti valið það fram yfir hitt.

54.) Boxers, g-streng eða venjulegar: boxers!

55.) MTV eða VH1: Veitikki

56.) Epli eða appelsínur: Epli, bananar og melónur

57.) Vanilla eða súkkulaði: Súkkulaði :o)

58.) Blóm eða sætindi: Blóm eru ekki æt og deyja á endanum. Hvað með eitthvað fallegt sem endist? En nammi er alltaf fínt :) Jú bæði!! dýrka bæði!

59.) Rómantík, gamanmynd, eða hrollvekja: Elska allar gerðir :D

60.) Bækur eða tímarit: Bækur, Lifandi vísindi, Skakki turninn og einstaka tónlistartímarit

61.) Sjónvarp eða útvarp: 50/50


TRÚIR ÞÚ Á:

62.) Engla: Get ekki ákveðið mig hvort

63.) Geimverur: jú þær hljóta að vera einhversstaðar

64.) Himnaríki: nei, ekki sem stað. Sem tilfinningu og líðan eftir því sem þú gerir og framkvæmir í lífinu.

65.) Helvíti: nei, ekki sem stað. Líka sem tilfinningu og líðan eftir því sem þú gerir og framkvæmir í lífinu.

66.) Guð: Ekki beint.. en ég trúi því að það er hægt að trúa á eitthvað yfirnáttúrulegt eða "superior" yfir manni.. 

67.) Skrattann: Nei


HEFUR ÞÚ:

68.) Farið í flugvél: Já, þónokkrum sinnum

69.) Grátið á almannafæri: Já

70.) Sofnað í bíó: Neibb

71.) Hitt fræga manneskju: Bara íslenskar frægar manneskjur. Jú og svo hef ég farið á tónleika með nokkrum frægum köllum..

72.) Hitt forsetann: Neibb

73.) Verið hrædd um að verða skotinn: Með byssu? Af hverju ætti ég að vera það?

74.) Dottið í holu: Já.. of oft

75.) Verslað í Rómeó og Júlíu: Nei, ég á enn eftir að redda geirvörtuklemmunum

76.) Synt nakinn: ekki svo ég muni eftir


77.) Skrópað í skóla: Já, en aldrei að ástæðulausu (að nenna ekki í íþróttir er ástæða)

78.) Farið í bæinn til að tékka á sætum strákum: Nei afhverju að fara sér ferð í bæinn til þess ef maður á fullt af sætum strákavinum heima :o)


HVAÐ FINNST ÞÉR UM:


79.) Bill Clinton: Hann er allavega skárri en helvítið hann George W. Bush…

80.) Sleikjóa: Góðir, nema sleikjóinn frá Sólveigu er eeeendalaus

81.) Drauma: fer alveg eftir aðstæðum… martraðir eru ömurlegar. Góðir draumar eru – góðir.

82.) Ást: Æðisleg :D

83.) Þeyttan rjóma: Alltílagi

84.) South Park: Fyndið, en ég horfi samt ekki á þá

85.) Strákahljómsveitir: Boy-band er hryllingur… En afturámóti.. Queen, Pink floyd og fleiri innihéldu bara stráka….

86.) Stelpur: Stelpur eru fínar. Alltaf samt með eitthvað drama og læti.. þá vil ég nú frekar einföldu strákana.

87.) Strákar: Bestir :D (nema þið fáeinu stelpur :P )


SPURNINGAR SEM SKIPTA EKKI MÁLI:

88.) Sefurðu með tuskudýr: Nei ekki beint. Á vistinni er ég með Hamley, Orega Dorm (dreki+ormur) og Raffa (gíraffi). Og svo bangsana hennar Hrefnu Rúnar, Bzzzu. Hmm.. já og heima er ég með Mikka Mús og Viðar og bangann frá Sigga sem ég get bara ekki ákveðið hvað á að heita...

89.) Hvenær fórstu síðast í sturtu: í morgun/eftir hádegi

90.) Ef þú værir tússpenni, hvaða litur værirðu: Grænn

91.) Hvað ertu með marga vini á vinalistanum: Hvaða vinalista?

92.) Síðasti geisladiskur sem þú keyptir: The Best of Rachmaninov

93.) Hvað ertu lengi í sturtu: 10-20 min. 

94.) Hvernig finnst þér rúsínu-hnetusmjör: Ojj hljómar ekki vel.

95.) Sefurðu á bakinu, hliðinni eða á maganum: Yfirleitt á maganum eða hliðinni.

96.) Hvernig er músamottan þín: Ég nota enga músarmottu.. ég á ekki einu sinni mús. En ég á samt músarmottu með broskalli.

97.) Hvað er undir rúminu þínu: Ryk, blöð og möppur

98.) Hvað er klukkan? 02.30 am

99.) Nr. hvað notarðu af skóm? 37-40, fer eftir merki samt (sum merki eru með stærri eða minni stærðir)


100.) Göt: 2 í hvoru eyra

101.) Uppáhalds matur? Indverskur kjúklingur, slátur, ofnbakaður karrýfiskur, hrísgrjón, humar og skötuselur, kínverskur matur, thailenskur matur

102.) Uppáhalds veitingastaður? Á engan uppáhalds.

103.) Uppáhalds drykkur? Epla- og ananasdjús (ekki samt bæði í einu)

104.) Hvaða ís finnst þér bestur? Bragðarefur með jarðarberjum, nóakroppi og hlaupi!

105.) Disney eða Warner brothers? Disney!

107.) Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Er ekki með teppi

108.) Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í? Ég hef ekki lent í neinu svakalega vandræðalegu, ekki þannig.. hins vegar eru svona semi-vandræðaleg móment á hverjum degi :P

109.) Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Tónastöðinni (mmmm flyyygill), Skífunni, Smekkleysu og bókabúðum. Mest Tónastöðinni og bókabúðum!

110.) Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Ef ég er í stól með hjólum á (skrifborðsstól) þá finnst mér gaman að snúa mér í hringi. Annars fer ég oftast í tölvuna. Eða tala við vini mína…

111.) Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? “Eru þið tvíburar?” og “Hvernig er að vera tvíburi?”

112.) Hvenær ferðu að sofa? Oftast í kringum miðnætti

113.) Uppáhalds íslenska lagið þitt? Hmmmmm of mörg!

114.) Hver eru markmið þín? Útskrifast úr ME. Fara svo til Reykjavíkur að vinna eitthvað, ferðast helling. Klára amk. 2 háskólapróf í Sálfræði og fara í Art Therapy, auglýsingasálfræði, lífeðlisfræðilega sálfræði eða einhverja aðra tegund af sálfræði og eignast frábæra fjölskyldu :D Og eiga bókabúð+kaffihús þegar börnin eru farin að heiman og ég hætt að vinna.

115.) Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Vera með vinum mínum, lesa, vera í tölvunni og teikna/mála

116.) Hvað er það mest "mean" sem einhver hefur gert við þig? Allt andlega eineltið frá Hrefnu Rún, Palla og Ása!