Atburðarteljari

Auglýsing

Jólin!

8D

Привет!

24. nóvember 2008 klukkan 14:03

Ég ákvað að blogga í TextEdit í staðin fyrir að þurfa að fara inná sal með öllum busunum til þess að komast í net. Það er að verða dáldið bögg að hafa ekki net á herbergjunum. Allavega okkar megin í byggingunni. Ég skil ekki afhverju var verið að taka af okkur netið. Ekki gott fyrir fólk sem er aðallega í fjarnámi og p-áföngum og þarf að vera á netinu til að læra. En enívei.. 

 

Ég er rosa dugleg í dag. Allavega í rússnesku. Vaknaði kl. 7 til að gera þemaverkefnið sem við áttum að skila 14. nóvember (betra seint en aldrei?) Var meira að segja önnur eða þriðja til að skila! Nokkuð gott.. eða nokkuð slæmt eiginlega. Við erum rosa rosa leiðinlegur hópur fyrir kennarann. Eeen svo er ég að hugsa um að gera þýðingarverkefni nr. 2 í dag! Var að klára eitthvað frekar létt 1.bls þýðingarverkefni úr kennslubókinni svo að ég er full sjálfstraust til að byrja á sögunni sem við eigum að þýða. Það er samt allt í lagi. Sem betur fer er þetta jólasaga fyrir börn :) Með fullt af myndum og dóti svo að þetta ætti ekki að vera svo slæmt.

 

Ég er að hugsa um að fara að taka fleiri myndir og video af lífinu hérna á vistinni. Það hafa næstum engar myndir verið teknar síðan Sara fór. Ég held að hún hafi algjörlega haldið þessu uppi. Annars er svo ógeðslega gaman að skoða video af öllum seinna. Það eru fleiri farnir að hanga meira með okkur sem við eigum voða fá video og myndir af svo að það er ekki seinna vænna að byrja að taka myndir!  Ég get byrjað á því að fara inn í hitt herbergið og tekið video af Sigga litla að lúlla uppi í rúmi og Búa að spila tölvuleik... eða komið inn í herbergi til strákanna og tekið mynd af Ása og Palla að spila Æsvindeil (Icewind dale?) ég næ aldrei almennilega hvað hann heitir.. en ég er í honum! Ási  og ég bjuggum til karakter sem er ég :D Ég er sko róg og lem alla í klessu! Ég er líka tvisvar í wow! Palli á mig í wow og svo bjó Ási mig til líka um daginn. Og ég á pet sem er dreki og heitir Ásgrímur og svo á ég bráðum annað pet sem heitir Sara... enjá... þegar ég fer að hugsa um það, afhverju að taka video af þessum tölvum? Ekki það að ég eigi eftir að gleyma þessum blessuðu tölvum einhverntíman -.-" 

 

Annars fór helgin ekki í neitt. Hún hvarf bara. Ég hékk í tölvunni og lærði varla neitt. Fór reyndar einu sinni í tónskólan en gekk ekkert vel og fór svo á bandýæfingu sem gekk ekkert það vel þegar ég hugsa svona út í þetta seinna. Ég er að hugsa um að koma á æfingu á morgun og fara ekkert á fimmtudaginn. Nenni ekki að vera með enn fleiri marbletti.. passa voða vel við kjólinn sem ég verð í á 1. des á föstudaginn. Við erum samt alveg að gefast upp að fara á þetta ball. Það er orðið hundleiðinlegt að fara á 16 ára böll. Það er ekkert nema blindfullir litlir krakkar rúllandi um gólfin. Það er ekki lengur gaman, sérstaklega þar sem ég nenni ekkert mikið að drekka mikið lengur svo að ég man eftir öllu og sé allt.. Sem er ágætt á öðrum böllum og svona. En já.. þannig að við ætlum bara heim eitthvað öll og chilla bara ;) Þetta er btw í fyrsta skipti sem ég fer á árshátíðina! Hef alltaf, eða allavega tvisvar, farið á 1. des ballið en aldrei borðhaldið. Mér finnst bara ekkert svo gaman að klæða mig upp í fín föt.. Mér finnst geðveikt að vera milli-fín-klædd en ekki rosa rosa fín. 

 

Við Hrefna Rún ætlum að reyna að koma heim laugardaginn 13. desember. Við erum báðar búnar í prófum 12. desember en nennum ekki að leggja af stað alveg þá.. þurfum alveg tíma til að pakka niður sem ég á ekki eftir að hafa mikið af þar sem ég þarf að læra undir líffræðipróf! Annars verður seinasti hlutinn ekkert mál held ég :P Helmingurinn af þessu eru skynfærin sem ég er btw búin að læra í 2 áfögum áður (SÁL213 og smá í LIM113). Plús að ég skrifaði ritgerð í SÁL213 um augað svo ég ætti að vera nokkuð seif. 

 

Það eru 30 dagar í jólin! og 1. í aðventu er á sunnudaginn!!!! Ég ætla að búa til aðventukrans úr blómakertastjökunum sem ég keypti i Tiger þegar ég var í Reykjavík og fullt af eplum og mandarínum. Eplarínukrans!

blogg (frumlegur titill?)

21. nóvember 2008 klukkan 11:25
Ég er orðin rosalöt að blogga. þetta gengur ekki svona lengur! Og greyið Sara fær aldrei að vita hvað gerist hérna vegna þess að ég blogga aldrei :P Ekki það að það gerist svakalega mikið hérna. 
Það átti að vera gettu betur keppni milli 2 liða okkar í gettu betur hópnum og 1 lið kennara á fimmtudaginn en kennararnir náðu vist ekki í lið. Það hefur örugglega vantað þriðja aðilann. Þorbjörn og Þórður Mar verða pottþétt á móti okkur. ÚFf shitt það verður erfitt lið að keppa við. Sérstaklega af því að hopum okkar er splittað i tvennt og liðin höfð sem jöfnust. En kosturinn er að eftir keppnina fáum við að vita hverjir verða í liðinu :) :) Ég get ekki beðið! Ég veit samt að ég kemst í liðið og ég er alveg pottþétt á því að Arnar kemst líka inn en svo veit ég hinsvegar ekki hver verður þriðji aðilinn :/ Þannig að það er bara enn meiri spenningur! Ég hlakka líka til að heyra hvernig liðið verður á næstu árum þar sem það er mikil nýliðun í hópnum. Kjartan fór náttúrulega fyrstur og svo Egill og Hrafnkatla svo að við misstum alveg rosa góða keppendur. En jæja, þeir sem núna eru að byrja lofa alveg góðu líka :P En eru bara busagrey í augnablikinu.. eða sum allavega. Enívei..

Já og svo var Morfís um daginn :D Hrefna Rún, Haffi Eide, Ásta Hlín og Erna voru í liðinu og gett bara ótrúlega vel! Mér fannst við allavega vera miklu málefnalegri en FS sem kepptu á móti okkur og unnu. Þeir voru hinsvegar miklu skemmtilegri. Það var lið af uppistöndurum en rökin sem þeir komu með voru bara. "ddöh læknar eru góðir" aftur og aftur og aftur. Við vorum hinsvegar með fullt af mismunandi rökum og litum á málefnið frá mörgum áttum og svona. En það er náttúrulega erfitt að vera á móti einhverju eins og þessu.. En djöfull hefði verið leiðinlegt að vera með læknum. Ekkert fútt í því! 

Ég er loksins að komast á skrið með teppið mitt :D Þeir sem ekki vita þá er ég búin að vera að hekla litla búa sem ég ætla að sauma saman í teppi. Ég er núna komin með 6 3x3 búta! Sem gerir 54 lita heklubúta :O plús nokkra auka. Þetta á eftir að taka milljón ára að klára. Ég get samt bráðum sett teppið ofan á fæturna á mér... en mig langar að gera teppi sem maður getur alveg farið undir.. en já það mun gerast á lööööngum tíma.

Ég er mikið búin að vera að pæla í hvað ég eigi að gera næsta haust. Ég er loksins að útskrifast í vor og mig langar geðveitk mikið að taka mér árshlé og gera eitthvað skemmtilegt. Ég er bara svo hrædd um að allt verði alveg á hausnum og við Ási erum meira að segja búin að hætta við Asíuferðina okkar í sumar :( Ég sem var farið að hlakka svo mikið til að fara :( Við vorum að pæla í að skoða Rússland, Indland, Japan, Kína, Taíland og örugglega miklu fleiri staði. Bara eitthvað leika okkur og ferðast. Taka bara nægan tíma í þetta og fara einhverntíman heim eftir tvo mánuði eða eitthvað. Hefði verið svooo geðveikt en það er víst allt svo dýrt núna :( Nógu erfitt að hugsa sér að flytja til Reykjavíkur í haust. Ég held nefnilega að ég sé búin að ákveða að fara ekki í HA. Mig langar geðveikt í hann en hinsvegar langar mig til Reykjavíkur og hitta Söru meira, og svo verður Ási náttúrulega í Reykjavík. Miklu styttra heim á Höfn ef mig langar í heimsókn að hitta mömmu og pabba og sólveigu og elvar og gunnar og alla bara.. Svo koma örugglega fleiri til Reykjavíkur af vinahópnum og svona. Annars langar mig geðveikt mikið að flytja eitthvað út. Væri helst til að í að fara til Gautaborgar en ég veit bara ekki hvar ég ætti að fara í skóla. Kannski betra að byrja bara að fara í HÍ og hugsa sig um og fara frekar haust 2010 eitthvað í burtu. OOoo eða Skotland! Mig langar til Skotlands eða Írlands :) Eða bara Norðurlandanna, það er náttúrulega minnsta málið að fara til Norðurlandanna og kostar minnstan pening. Svo væri gaman að læra almennilega að tala Sænsku eða Dönsku.

Ég er loksins búin að uppgötva íþrótt sem mér finnst gaman í og ég er actually góð í! Öll síðustu 3 ár hafa strákarnir nauðað í okkur að koma á bandýæfingar en ég hef alltaf neitað þangað til ein æfing í fyrra og þá uppgötvaði ég hvað það var ógeðslega gaman. Svo eru Palli og Ási duglegir að halda mér í æfingu sem markmaður :P Alltaf að lemja mig og kasta dóti í mig. Lenti í góðum kókómjólkurfernuslag við Palla fyrir nokkrum vikum :P Er loksins að fá góð viðbrögð og svona og er orðin alveg ágæt bara í marki :D Það er líka svo gaman! Ég er búin að fara á 3 bandýæfingar í þessari viku + 2 íþróttatíma (Sund í öðrum og körfubolti+bandý í hinum). Það er samt ekkert gaman að vera í bandý í íþróttatímum. Fólk er bara með einhver skítköst og eitthvað og svindla og svona. Það er bara gaman þegar allir eru að mæta á bandýæfinar TIL ÞESS AÐ SPILA BANDÝ! Svo er Egill búinn að vera að kma núna nýlega á æfingar svo að það er kominn annar Siggi... Það er bara að svo gaman að spila með einhverjum sem eru virkilega góðir í þessu og líka skemmtilegt að horfa á. Það er skemmtilegra að spila menntaskólabandý heldur en alvöru bandý þar sem það eru færri reglur og allt meira brutal!!! Ég missti reyndar af rosa brútal æfingu um daginn þar sem Lára fékk bolta frá Palla á minnst 100km hraða (að eigin sögn) og var með rosa far  í viku. Æfingin á þriðjudaginn var hinsvegar alveg nógu brutal fyrir mig. Ég held að það komi svona á biliu 2-10 manns slasaðir af hverri æfingu. Ég hélt á tímabili að ég væri búin að brjóta á mér puttann en svo lagaðist það.. þangað til í gær þegar ég varði AFTUR með sama putta. Núna er hann röndóttur. Blár - rauður - blár - rauður! Svo er ég með tólfhundruð marbletti á sköflungnum og einn stóran á bakinu eftir Palla (skamm Palli!).

Það var valdagur um daginn. Siðasti valdagurinn minn! Fólk alltaf að spyrja mig að því hvort ég sé að gera eitthvað á síðustu önninni minni. Held að allir séu að vera vanir því að ég geri ekkert í skólanum sem ég á að gera. En viti menn... ég á 6 einingar eftir í kjarna! Ég tek þetta í vitlausri röð.. á alla kjarnaáfanga eftir en kláraði kjörsvið fyrir löngu. Nei annars var þetta bara LAN103 sem ég er skíthrædd við vegna þess að það hafa allir vera að hræða mig á honum. Segja að hann sé helvíti.. enda kenndur kl. 8 á morgnanna í fjarkennslu frá FAS og er á undan öllum öðrum áföngunum. Svo við þurfum að vakna fyrr til að gera ótrúlega leiðinleg verkefni. En gaman.. svo á ég eftir að fara í NÁT113. Verður ekkert mál. Ég hef bara ekki haft tíma til að fara í hann áður. Miklu fleiri óþarfa áfangar sem ég bara ÞURFTI að fara í. Annars er ég byrjuð að taka fjölmiðlabrautaráfanga núna. Er í MHS103 á þessari önn (Félagslegt og sögulegt samhengi grafískra miðla) sem er mjög skemmtilegur. Svo fer ég í EPP102 (efnis- og pappírsfræði) og MOF103 með Dagrúnu (Myndbygging og formfræði). Ég fékk þær vondu fréttir að LÍF203 verði ekki kenndur á næstu önn :( :( :( Og ég sem var í líf103 bara til að geta komist í hann!!! Mig langaði í erfðafræði. Oh well.. kannski fer ég bara í FÉL303 í staðin... smá stjórnmálafræði er öruggleg allt í lagi. Svo verð ég í ÍSL603 - málfræði :D Hlakka til.. nema Sósan kenni hann.. Ég nenni ekki í fleiri áfanga hjá henni :( Svo er ég hætt við að fara í ENS603. Sé bara fram á að hann verði svipaður og 703. Skrifa stórar ritgerðir og verkefni. Það er ekkert mál þannig nema tekur bara rosalegan tíma og er ekki það skemmtilegt. Annars skrifaði ég mjög skemmtilega ritgerð í 703 um auglýsingar og auglýsingasálfræði. Fékk meira að segja 9,5 fyrir :D Enda var þetta líka fokking erfitt! Sálfræðirugl á ensku er ekkert svakalega auðvelt aflestrar. Ég var með 2 tölvur, gömlu tölvuna mína bara fyrir orðabók sem ég notaði MIKIÐ á meðan ég skrifaði.

En já.. þetta er farið að verða svolítið langt blogg.. of langt blogg. Shit það nennir enginn að lesa það loksins þegar ég blogga! Ég hefði samt getað skrifað helling meira, en ég talaði bara svo lengi við Söru í símann í gær þegar ég var hjá Ása að ég held að ég hafi sagt allt :P Já.. nema Ási á kettling!!! Eða það er kominn kettlingur heima hjá honum :D :D Og hún heitir Rósa og er ógeðslega sæt ^^ Mig dreymdi að Mía hefði eignast kettlinga :O :O Og þegar þeir fæddust voru þeir orðnir stálpaðir. Svo dreymdi mig í nótt að Jón Ingi hefði skrifað nýjasta SIMS leikinn handa mér og gefið mér. Og ég sem spia SIMS ekkert lengur. Fyndið. Ég er farin að muna draumana mína nokkuð vel og oft :S Síðustu vikurnar allavega. Og þeir eru allir eitthvað voða asnalegir eitthvað. En samt skemmtilegir! Mig dreymdi fyrir nokkrum dögum að við Eiríkur ætluðum að fá okkur Tattú og fengum okkur.. nema tattústofan var þar sem herbergi 214 (sem Þráinn og Bergen (Björgvin) eru í og já.. Það var samt bara af því að ég fann myndina sem mig langar að fá mér tattú af! Ég ætlaði alltaf að fá mér f-lykil á vinstri úlnliðinn en svo er ég að hugsa um að breyta því í þetta:  http://img300.imageshack.us/img300/1350/picture1id7.png

JEEI! Pomp and Circumstance var að koma upp á shuffle á itunes :D Þetta er geðveikt lag!
Jæja nú ætla ég að fara að fá mér kjúkling og franskar og ís með fullt af íssósum á.. Aaaaaaah kjúklingaföstudagar ^^

Að lokum.. eitt sem ég fann á facebook:

You know you're a band geek if...

1. Band is your favorite sport.

2. You hum band songs in other classes.

3. You've ever done roll-step while walking with a full plate or glass to keep things from spilling.

4. You've never been on a Friday night date, thanks to the football games.

5. You walk in step with any music you hear.

6. A snake is a favorite activity, not an animal.

7. You would never go to a football game if not for band.

8. "Hey Baby" really is the only pick-up line you know.

9. You hear the phrase "tongue harder" on a regular basis.

10. You know that "one more time" actually means "four or five more times".

11. You can't watch Pirates of the Caribbean without wondering what formation you should be in.

12. It bothers you when the person walking next to you isn't in step.

13. Your band director's phone number is on speed dial.

14. When you retell some of your favorite memories of summer, you start with the phrase, "This one time at band camp..." and mean it.

15. All your friends are in band.

16. You've actually been to band camp and consider it the highlight of your summer.

17. You know how to play 10 popular-stand tunes, but know the words to none of them. 

18. You point out key changes and dynamics when you listen to the radio.

19. You've never had to pay to get into a football/basketball game.

20. You've never sat in your class section at a pep rally because you're always playing.

21. You start humming a showtune from three years ago and your friends join in with their respective parts.

22. You listen to band demo CDs in your car.

23. You know that "push in" and "pull out" are regular tuning phrases and are in no way sexual.

24. You see no pervertedness in the words tongueing, blowing, and fingering.

25. You are late for band because you were at another band rehersal.

26. You think there should be horn pops in symphonic band. (for marching band geeks)

27. You laugh at all of these because you know they're all true.

28. You realize you are out of step with the song in your head and you adjust your step.

29. You have constant arguments as to why your instrument is better.

30. You insist (no, KNOW) marching band is more physically and mentally taxing than football.

31. Even after you graduate, you still go to every competiton and sit with the band.

32. Someone asks you who your favorite band is and you say "High school or college? DCI? Which division? I, II or III?"

33. You have a mnemonic for the different modes... "I Don't Punch Like Muhammad A-Li" (Ionian, Dorian, Phrygian, Lydian, Mixolydian, Aeolian, Locrian).

34. The entire floor of your trunk is littered with sheet music.

35. You're walking to class to the tempo of the ballad, the late bell rings, and you suddenly walk to tempo of the 3rd movement.

36. You carry a metronome in your pocket.

37. You feel the overwhelming compulsion to tap out a drum cadence on the nearest hard surface, even if that means tapping it out on the stranger standing next to you.

38. You know what it's like to have a reed frozen to your lips.

39. You know just how many people can fit into a band locker (from experience).

40. You get upset when an audience can't clap in time or on the right beats.

41. You use the excuse, "I can't, I have rehearsal" more than five times a week.

42. You can tell what someone plays just by looking at them.

43. You only know how football is played because 
you are forced to sit through the games.

44. You know your school song by heart, backwards, in the dark, sleeping, and in every key because you have played it so many times.

45. When you hear a school with the same fight song, you want to join in and play.

46. You can look at a little kid and guess what instrument they are going to eventually play... and guess right.

47. You get excited when you hear songs in movies that your jazz band or any other band played.

48. You automatically go to attention when you hear a whistle...including the ref's.

49. You continue doing band in college even if you are not majoring in music.

50. You get annoyed when you are listening to the radio and the car's blinker is not in sync with the beat of the music.

51. You subdivide into 8ths, 16ths, triplets, and quintuplets a turning signal, walk pace, song on the radio, or just about anything that keeps time.

52. You once drove back to your house going 60 mph because you forgot your music, or part of your uniform, or other essential item, before a practice or concert or competition.

53. You describe distance in 8-to-5 steps.

54. Someone threatening to kick your instrument is worse than someone threatening to kick you.

55. You have a favorite key and/or time signature.

56. You listen to a song and think about how cool it would be to arrange it for a field show.

57. You only date people who are in the band (or orchestra or choir).

58. You have most, if not all, of the songs your band(s) has ever played on your MP3 player.

59. You've ever suggested having a lock-in in the band hall.

60. 95% of your pictures in your scrapbook or photo album are pictures of things you did with the band.

61. When your friends call you a band geek, you don't deny it, and in fact, take it as a compliment.

62. You've ever tripped with your instrument and sacrificed your body to protect your horn.

63. You tap your foot to elevator music and the radio.

64. You don't go home on the day of a football game.

65. Your band locker is your personal space for anything and everything.

66. You rarely see your family during the fall because you are always doing marching band things.

67. When you're walking along with a friend, you automatically get in step and in time with their footsteps.

68. Your marching show is your ring tone.

69. You skip other classes due to weather, but then go to band.

70. You hear a slight beat and rhythm to everything around you... i.e., the air conditioner, the fan, the pencil scribble sound, and the squeaky desk.

71. You like the way reeds taste.

72. You wonder what it would be like to play the music in basically every movie you watch.

73. You can listen to a song and figure out the time signature, and often consult with other bandies who are doing the same thing at the same time.

74. You trade instruments when there's a substitute teacher for band class.

75. You've learned the hard way not to walk through the brass section without shoes.

76. You know that getting to a band event early means you're on time, on time means you're late, and late means you're in trouble.