Patrekur 1,5
Já nú er það staðfest: Það er kominn vetur.
Ég leit út um gluggann í morgun og það var allt orðið hvítt! Reyndar ekki mikill snjór en það hefur snjóað í mest allan dag. Mér finnst reyndar snjórinn allt í lagi :) Á meðan það er ekki þannig að það trufli mig. Mér finnst snjór nefnilega æðislegur :) Allavega á haustin en þegar hann verður að hálku eða krapi eða einhverju ógeðslegra þá vil ég helst ekki fara út fyrir dyrnar...
Ég ætla að reyna að fá frí í MYL eftir hádegi til að komast á sýningu Þjóðleikhússins á Patrekur 1,5 :D Ég kemst ekki á sýninguna klukkan 8 af því að ég er að fara á kóræfingu. Ási er búinn að nöldra í mér að koma og Zigmas sagði mér að fara að ákveða mig hvort ég ætlaði að vera með eða ekki.
Ég var á morfísfundi í gær þar sem við vorum að horfa á gamla keppni í Morfís og komu þá ekki leikararnir og fleiri úr patreki 1,5 inn til okkar og trufluðu okkur! Þeir fóru reyndar eitthvað að tala við okkur, spurðu okkur við hverja við værum að fara að keppa (FB) og sögðu okkur svo að við myndum rústa þeim og FB væru hálfvitar :) Ekki slæmt að fá nokkra fræga kalla og segja manni það.
En ég þarf að fara að drífa mig í náttúrufræðitíma
Au-revoir
American graffiti
Ég þurfti að hætta í miðju kafi við bloggið síðast.. ég sem var á svo góðri leið með að slá blogglengdarmetið mitt... Skrifa allt um myndina sem ég sá í MYL tíma á síðasta miðvikudag seinna :)
Ég fékk semsagt far með rútu stútfullri af krökkum úr FAS sem voru að koma úr ferð með ME á Mývatn. Sara ætlaði að koma líka en þurfti að vinna alla helgina svo ég kom hingað bara alein. Mætti beint á generalprufu hjá skemmtifélaginu og fór svo bara beint heim að sofa.
Í dag kom svo Gunnar til mín og horfðum eitthvað á sjónvarpið og eitthvað.. já á The Biggest Loser.. sem er hrikalegur þáttur.. greyið fólkið púlaði þangað til það var flutt á sjúkrahús :S Shit þessi bandaríkjamenn eru ekki eðlilegir. Allavega við skelltum okkur niður í Jaspis til Sólveigar og Hrefnu Rúnar sem voru í greiðslu og förðun og Sólveig (og Gunnar) settu þessa líka fínu hárgreiðslu í mig.. ég var með krullur í dag :D En eins og vanalega detta þær eiginlega úr og allt í klessu eftir fáeina klukkutíma þannig að ég greiddi mér bara og var með slétt hár aftur á frumsýningunni í kvöld. Ég fékk nefnilega að koma inn þó að það væri 18 ára aldurstakmark sem ljósmyndari og bílstjóri.. átti að koma litlu krökkunum heim =)
Frumsýningin var bara æðisleg og tókst frábærlega !! Salurinn var æðislegur og tók undir og dansaði og já.. allt bara frábært!! Svo næst verð ég kannski bara á öllu dæminu :) :) loksins þegar ég hef aldur til þess...
Held að Hrefna Rún ætti að vera komin úr sturtu svo að ég ætla að fara að koma mér.. erum á leiðinni til Sólveigar og ætlum að draga Gunnar til okkar lika..
Au-revoir!
föstudagurinn ţrettándi
Reyndar hef ég aldrei orðið fyrir neinni sérstakri óheppni á þessum degi og veit ekki til þess að neinn sem ég þekki hafi gert það heldur.
Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast, en þó kannski ekki margir merkilegir hlutir. Tíminn ákvað að líða enn hraðar en vanalega og í vikunni er komið að því að við fáum miðannarmat!! Ég er búin að fá A í öllu nema því sem er ekki komið inn (Íþróttir, sálfræði og íslenska). Ég fæ líklega ekkert í allavega SÁL og ÍSL fyrr en í næstu viku, tók fyrsta kaflaprófið (kaflar 1 og 2) á miðvikudaginn og gekk bara frábærlega vel. Eða svona.. ekki illa =) Þegar ég fer að hugsa um það, þá hefði ég getað svarað einni spurningu miklu betur og ég ruglaði einhverju óviðkomandi kalli inn í ritgerðarspurninguna um atferlissjónarmiðið.
Morfís
Ég var ekki búin að minnast á það í blogginu að ég er að fara að taka þátt í Morfís í vetur. Ekki samt í liðinu, það er sama lið og í fyrra og við hin sem viljum vera með erum þjálfuð upp í vetur svo við (eða einhver af okkur) geti tekið við á næsta ári þegar allir úr liðinu nema einn útskrifast.
Það var fundur hjá okkur í vikunni, ætluðum að horfa á gamla morfís keppni en tæknin var eitthvað að stríða okkur. Við komumst að því að snúran í upptökuvélinni passaði bara á makka og við fundum ekki neinn sem vildi lána okkur makkann sinn. Þá fórum við upp í Húsið og tengdum í makka þar.. en enginn af okkur kunni á makkann svo að við gátum ekki horft á neitt! Þannig að við fórum bara upp á sal aftur og okkur var skipt í 2 þriggja manna lið og morfísliðið okkar horfði á okkur flytja ræður. Umræðuefnið var barnaefni og ég, Nína og Andrea voru á móti barnaefni. Já og ég skrifaði alveg þrusuræðu um hvað barnaefni væri heilaskemmandi og þroskatakmarkandi. Fólk hló og allt :) Ég var reyndar alveg að hætta við að fara á fundinn.. hélt að ég myndi ekki geta skrifað neinar ræður en svo þegar ég komst í gírinn rifjaðist upp fyrir mér hvað það var....
Sara var að hringja í mig.. það er kannski far heim á höfn eftir korter!!! verð að þjóta...
Heima
Annars er Sólveig að vinna alla helgina, og þær Hrefna Rún á stanslausum æfingum með Skemmtifélaginu, já og mamma og pabbi líka eiginlega. Sem betur fer kemur Gulli svo núna í dag.. eða hann kom í gær en fór held ég í Berufjörðinn eða eitthvað....? Allavega hann ætlar að koma í dag heim, ég verð bara að bíða eftir að síminn minn komi úr hleðslu svo ég geti hringt í hann (já án þess að síminn slekkur á sér!!) Því að ég er búin að fá mér nýjan síma :D :D :D
Nokia 6103.... og nei Ási, Nokia er ágætissímar!! Það er hægt að hringja í þeim og senda SMS.. annað en hægt var með gamla Sony Ericsson símanum mínum sem hékk varla saman!!
Ég nenni ekki að byja að læra. Verð samt að gera það núna á meðan Sólveig og Hrefna eru á æfingu... ég hef hvort sem er ekkert annað betra að gera.. nema náttúrulega ekki að læra.. en ohh ég bara nenni ekki að fara út á bókasafn til að læra fyrir listasöguáfangann.. hann er hundleiðinlegur. Listasaga er fín en ég nenni þessu bara alls ekki. Ég fékk samt 8 úr fyrsta verkefninu mínum.. 8 er ágætt.. hefði samt alveg getað fengið 9-10 úr svona verkefnum. En 8 er ekki svo slæmt. Jæja.. ég ætti kannski að fara...
En svo þegar ég pæli í því.. það er ekkert svo slæmt að fara upp á bókasafn!! Allavega er æðislegt bókasafn hér.. góð tilbreyting frá Egilsstöðum...
Au revoir
Á morgun verð ég nákvæmlega 17 og hálfsárs =) það þýðir þó ekki að þessi dagur hafi verið neitt sérstakur.
Eins og venjulega á þriðjudögum þá fór ég í íþróttir í fyrsta tíma og í dag var blak. jeijj :D Eftir að hafa verið að gefa á milli eitthvað, blaka eitthvað tvö og tvö saman í einhvern tíma fórum við að smassa yfir netið. Mér tókst eiginlega frábærlega að smassa.. eða í þetta eina skipti. Ég hoppaði upp og náði að smassa ágætlega fast og vel yfir netið. mjög flott. En ég endaði ekki á fótunum eins og maður á að gera.. nei ég endaði einhversstaðar í hrúgu á gólfinu og missteig mig.. mjög gaman.. gat samt staðið upp og Ási hjálpaði mér útaf þar sem ég fékk kælipoka og fór svo upp í herbergi í sturtu...
Ég veit ekki afhverju, en lyftan bilaði fyrir hádegi... og ég bý upp á 3. hæð, innst á ganginum. Þannig að dagurinn í dag fór að klöngrast upp og niður stiga. Til að toppa þetta þá er þriðjudagur sem þýðir að ég er 5 tíma niðri í stofu 16 sem er á neðri hæðinni inn í kennsluhúsi (2. hæðin er jarðhæðin). Og ekki nóg með það... í síðastu 3 tímunum mínum, ljósmyndun í stofu 16, er maður á sífeldu rápi milli stofunnar, bókasafnsins (jarðhæð í heimavistarhúsi) og í myrkrakompunni.. (heimavistarhúsi en leeeengst inni á gangi..). Þar stóð ég í 2 og hálfann tíma að stækka myndir og prófa tækin og eitthvað...
Eftir kvöldmat (kjötbollur) fór ég upp í tónskóla.. eða reyndar fyrst í tölvuna inni hjá Sigga.. en dreif mig loksins í tónskólann. Vandamálið var að lykillinn var hjá Söru og hún var að vinna upp í Hraðbúð. Semsagt, ég staulaðist upp í hraðbúð (kom við upp í tónskóla og prófaði að banka en enginn kom til dyra.. sá samt einhvern þarna inni) og náði í lykilinn hjá Söru og staulaðist til baka upp í tónskóla til að geta spilað í rúmann einn og hálfann tíma til að geta staulast aftur heim upp á vist þar sem tók við nokkuð labb upp stiga og inn ganga og núna loksins get ég sest niður og skoðað tvöfalda fótinn á mér. Ökklinn á mér er nefnilega í fokki eftir að ég missteig mig... kúlan sem er svona á öklanum vanalega er orðin eins og risastórt kýli og mér líður eins og einhver haldi með 5 höndum um ökklann á mér svo að ég get varla hreyft hann nema rétt nógu mikið til að haltra eitthvað.
Jæja, ég get allavega huggað mig við það að þurfa bara að labba 4 sinnum til og frá tónskólanum á morgun....
Ég er nefnilega að fara að spila á einhverjum tónleikum á morgun klukkan 6, (klukkutíma eftir að ég er búin í skólanum) og þarf að mæta fyrr aðeins til að prófa píanóið upp á sal og hita mig upp og eitthvað) og svo fer ég náttúrulega upp í skóla í kvöldmat á eftir.. og klukkan 8 fer ég aftur upp í tónskóla á kóræfingu! Zigmas fékk mig í að fara í kórinn sem er verið að stofna með elstu nemendunum í tónskólanum og kennurunum... Ég er að pæla að æfa mig líka þá fyrir tímann minn á fimmtudaginn. Sem minnir mig á.. gettu betur æfing hlýtur að falla niður á fimmtudaginn þar sem það er frí á föstudaginn og lokuð helgi og allir að fara heim!!
Vá ég var svo upptekin af fætinum á mér að ég var næstum búin að gleyma að allt er að gerast í bílamálunum :D Við Fjölnir fórum á bílarúnt á mánudaginn. Tjékkuðum á Ventoinum sem ég var mikið til í að kaupa en þá var gaurinn sem ætlaði að selja hann HÆTTUR við. Hann ætlaði þó að hafa samband ef hann skipti aftur um skoðun. En svo prufukeyrði ég einhverja Mözdu.. og svo er önnur Mazda sem er til hérna á Egilsstöðum sem mig langar dáldið í =) Hef reyndar fengið MJÖG misgóð viðbrögð við honum...
hérna er linkurinn:
http://www.bilasolur.is/Car.asp?show=CAR&BILASALA=62&STYLE=62&WS=1&BILASALAGROUP=62&BILAR_ID=100885&FRAMLEIDANDI=MAZDA&GERD=MX-6&ARGERD_FRA=1991&ARGERD_TIL=1993&VERD_FRA=-20&VERD_TIL=580&EXCLUDE_BILAR_ID=100885
Endilega kommentið hann.. en þið getið ekki breytt skoðun minni á honum... það er bara skemmtilegra þegar vinum manns finnst bíllinn manns flottur =)
Enda bloggið á lofsemdum um geisladiskana sem Ási kom með í dag !! Ég er búin að setja inn 5 klassíska diska í tölvuna mína í dag og henti út öllu Nirvana draslinu sem ég var með í tölvunni. Enda fíla ég þá ekki.. of sjálfseyðandi tónlist (hey kannski ég ætti að hlusta á þá í enskutímum??)
Allavega.. ég setti inn einhvern best of Dvorák, best of Chopin, Mozart - Requiem, einhvern most famous Adagio, og great pianists of the century vol 2 (er reyndar með hina 4 líka..en þessi er bestur!!!)
05 Piano Sonata No. 2 op. 35 - Marche funebre eftr Chopin 4TW !!!!!!!!!!
Bohemian Rhapsody
Kíkið á þetta.. þetta er snilld !!
http://www.youtube.com/watch?v=GdARoYT3cww
Nýtt útlit =)
Síðan var orðin dáldið þreytt er það ekki....
Ég hef voða lítið að segja svo ég skelli inn 2 uppáhalds hávamálunum mínum =)
43.
Vin sínum
skal maður vinur vera.
þeim og þess vin.
En óvinar síns
skyli engi maður
vinar vinur vera.
50.
Hrörnar þöll
sú er stendur þorpi á,
hlýrat henni börkur né barr.
Svo er maður sá er manngi ann,
hvað skal hann lengi lifa?
Ungt fólk sem stundar tónlistarnám er ekki bara leiðinlegra en venjuleg ungmenni heldur reynast þau almennt heimskari, latari og ábyrgðarlausari en jafnaldrar þeirra. Þetta eru niðurstöður könnunar sem sýna að svokölluð klassísk tónlist gerir menn að aumingjum og hafa ekki ósvipuð áhrif á mannsheilann og Kannabis.
btw.. Fer heim á fimmtudaginn !!
Hćbb
Ætla að henda inn einu bloggi áður en ég fer að sofa. Var að koma frá strákunum. Þeir voru í DOTA í warkraft þannig að ég horfði bara á þá í ... 40 minútur held ég, eða Stebbi, Siggi og Palli voru einu sem voru þarna inni.. og ekki má gleyma "Köngulóarbörnunum" hans Sigga :P Annars var þetta venjulegur miðvikudagur hjá mér. Ég vaknaði reyndar óvenjulega illa og kom aðeins of seint í íslensku þar sem ég var í svo mikilli fýlu að ég nennti ekki að flýta mér að borða. Gerði voða lítið í íslensku, þýddi 6 hávamál á klukkutíma á meðan Stebbi og Leif voru komnir langt á undan... svo fórum við í frönsku og horfðum á seinni hlutann (en ekki endann) á Yamakasi sem er einhver frönsk bíómynd, með dönskum texta! Maður gleymdi því samt að það væri danskur texti, vá hvað ég hlýt að vera orðin góð í dönsku núna... loksins þegar ég er hætt og útskrifuð úr henni!
Fór svo í enskutíma.. hann var eilífð. Svo í sálfræði sem var ógeðslega skemmtilegur eins og vanalega (próf á föstudaginn í næstu viku!!) og í mat.. og ÞAÐ VAR SLÁTUR Í MATINN :D :D :D Ég var einmitt að hugsa um það í morgun að mig langaði í slátur. Komst líka að því að það eru nokkrir mjög matvandir þarna. Allavega sátu Kristinn og Leif starandi á matinn okkar með viðbjóðssvip og sögðust ekki éta blóð og fitu. Fór svo í gat, efnafræðipróf sem mér gekk vel í :D Var ekki viss á 2 spurningum en gæti hafa slysast á rétt þannig að ég er vongóð um góða einkun... allavega betri en í íslenskuprófinu á mánudaginn (gat ekki svarað 2 spurningum og hef á tilfinningunni að sú síðasta hafi vegið mikið...)
Og svo í MYLáfangann... einn hættur svo við erum orðin 5 eftir.. ég ætla rétt að vona að engir fleiri hætti því að þá verður að leggja hann niður! Og ég sem er ekki búin með klippimyndina mína! Erum að vinna með eitt málverk, skrifa um það, teikna útlínuteikningu, svart/hvíta mynd, litmynd/klippimynd/pressumynd sem má vera í hvaða lit sem er en bara halda myndbyggingu á myndinni og vera í léttum litatónum (jafn dökkir/ljósir litir).
Þegar ég loksins kom heim úr skólanum klukkan tíu mínútur í fimm þá mætti ég Sigga og hann bað mig að koma í Axes & Allies... sem er borðspil um seinni heimstyrjöldina. Líkt RISKI en samt öðruvísi... Sérstaklega þar sem það voru bara 5 lönd í spilinu og 2 lið. Ég var bretland :D Og tók hertók Noreg.. en svo var kominn matur (langlokur&pítur) og svo gleymdum við Sara okkur að tala við Stjána um hljómborð og fórum svo til hans að spila á hljómborðið :P Og steingleymdum spilinu... Það verður bara að bíða betri tíma. Jæja, eftir það voru allir farnir í tölvuna svo við Sara og Stjáni fórum að horfa á Monty Python Life Of Brian en ég fór út í tónskóla þegar myndin var rétt nýbyrjuð :(
Og ég missti af öllu stuðinu!
Það var víst þannig að Helgi Ómar og Anna húsfreyja bönkuðu upp á öll herbergin og boðaði alla á vistinni (gesti líka) á fund inni á sal og sögðu frá því að einhver hafi rifið niður annan reykskynjarann á ganginum okkar og þar með eyðilagt hann.. ásamt öllu brunakerfi skólans. Svo voru svartir sótblettir á reykskynjurunum niðri á neðri 200 gangi :O Helgi Ómar var víst alveg brjálaður.. þetta er í annað skipti sem eitthvað svona gerist með brunakerfið hérna. Það eru svona 2 vikur síðan einhver braut svona hólf og náði í lykil að neyðardyrum og já.. án hans er ekki hægt að komast þar út.. nema náttúrulega sá sem TÓK lykilinn. Og hann hótaði að ef það næðist ekki að laga þetta yrðum við öll send heim á morgun! Sumir búa náttúrulega lengra frá en aðrir.... 4 á okkar gangi búa langt frá og eru ekkert á leiðinni heim bara einn tveir og nú sko...
Þetta blogg er orðið alltof langt :S Fyrirgefðu Sólveig! Ég var búin að lofa þér að blogga ekki mikið í hvert skipti.
Ætla bara að enda á því að þakka Kristni fyrir að hafa bjargað lífi mínu með því að gefa mér pizzu því að ég var að falla saman af hungri!!
Mér er bara ekki ætlað að verða ljósmyndari. Ég var að koma heim eftir enn einn misheppnaðann ljósmyndatíma. Ég er komin langt á eftir vegna þess að fimurnar mínar haga sér aldrei eins og hinna. Ég get svarið að allt sem ég hef gert er eiginlega ónýtt bara :/
En ég fékk leyfi til að sleppa fyrsta verkefninu.. ætla ekki einu sinni að reyna að komast að sannindum orðatiltækissins 'allt er þegar þrennt er...'. Tvö mishepnuð skipti eru nóg fyrir mig. En næsta verkefni er frekar svona flókið. Við eigum að finna ljóð og gera myndaseríu um það. Tja, það ætti ekki að vera erfitt en svo þegar maður fer að fletta í gegnum þetta allt.. þá sér maður að FLEST öll ljóð fjalla um tilfinningar og annað sem er ekki mögulega hægt að taka mynd af! En ég næ að finna mér eitthvað.. einhverntíman.
En ég ætti að reyna að klára ljósmyndaverkefnið heima (finnar ljósmyndir á netinu, útskýra þær út frá myndbyggingu, ljós, skuggum og litum) eða læra fyrir efnafræðipróf sem átti að vera í dag en var frestað þangað til á morgun..
sem minnir mig á ástæðuna fyrir frestuninni...
Stopphópurinn kom og sýndi leikritið Emma og Ófeigur í íþróttahúsinu :D
Það var æðislegt!! Algjör sýra... en æði. Það er lauslega byggt á Hamlet eftir Shakespeare og mikið um orðaleiki og skemmtilegheit. Þetta var snilld.. hentaði mínum húmor frábærlega!!
Sýningin byrjaði á því að Emma kom fram. Hún sagði hvað lífið væri ömurlegt, mamma hennar var dáin og hversu kærasta pabba hennar væri leiðinleg. Svo talaði mamma hennar við hana (draugaleg rödd) og bað hana að hefna sín á vondu kærustunni sem vildi ekkert nema peningana hans Njarðar (pabba Emmu). Hann var spýtukall. Í alvörunni spýtukall. Svona tæplega 2 metrar á lengd og með bindi. Og allt í sambandi við hann var orðaleikur! Fyrst kallaði Geirþrúður (vonda kærastan) á hann, spurði hann hvort hann hefði skotið rótum við sjónvarpið. Svo var hann óheflaður þegar "hann" ákvað að horfa á brjóstin á henni (leikin af manni) og trénaður og bara allt sem tengist spýtum... það var ógeðslega fyndið. Svo hitti Emma Ófeig sem ætlaði að hjálpa henni að koma Geirþrúði í vandræði. Hún var nefnilega alltaf að versla með hlutabréf á netinu fyrir Njörður Group og Ófeigur lést vera verðbréfasali og plataði Geirþrúði út í heim því hún ætti svo mikla peninga núna. Hún fór og var handtekin í fríhöfninni þegar öllum kortunum hennar var hafnað og þá lagðist hún niður og sagðist ekki vera Geirþrúður heldur einhver önnur nöfn. nema síðast þá kallaði hún. "ÉG ER OSTASKERI".
EN þetta var bara geðveikt! baraa.. geðveikt :P Við Sara og Ási sátum fremst á gólfinu (það voru engin sæti).
En jæja, dagurinn hafði allavega bæði góða og vonda hlið...
