gleðilegt sumar
Ætli þetta sé ekki orðið gott í kvöld... þið megið endilega pósta comments og í gestabókina!!
gleðilega páska
Já nú er páskafríinu að ljúka. Ég veit ekki hvort ég á að vera leið eða glöð. Það er fínt að þurfa ekki að gera neitt en það er líka voða gott að komast í skólann og vera að gera eitthvað. Því að eins og málshátturinn sem ég fékk í gær sagði:
"Iðjuleysi er rót alls ills."
Já, iðjuleysi ER rót alls ills. Í gær höfðum við ekkert að gera. Þegar líða tók á daginn þá ákváðum við mamma að laga til í eldhúsinu. Ef það sannar ekki að iðjuleysi sé rót alls ills þá veit ég ekki hvað.
Við förum heim á morgun, eða heim til Egilsstaða réttara sagt. Það er allt heima núna.. heim á höfn eða heim til egs. Ég var meira að segja að pæla í hvort ég ætti ekki bara að keyra þangað sjálf :P Annars þarf ég mest að æfa mig í innanbæjarakstri. Það er skelfilegt að vera svona í burtu og geta ekkert æft sig í marga mánuði!
Ætli ég segi þetta ekki gott í bili, lofaði Sólveigu að blogga ekki svona mikið svo hún gæti lesið þetta allt! Reyndar þegar ég fer að pæla í því, þá eru bloggin mín alltof löng og ég skil fólk að nenna ekki að lesa þau.
nýtt blogg
Ég er svona aðeins að prófa nýtt bloggkerfi. Fannst þetta svo ansi sniðugt og mjög vel hannað (annað en folk.is sem ég er að nota núna) og ákvað að prófa aðeins. Kannski færi ég bara allt bloggið mitt hingað yfir! Ég vildi reyndar að það væri hægt að breyta bannernum á þessu útliti en ég sé að það er bara hægt á öðrum útlitum.. en jæja.. ég hef þá þetta eins og það er því að mér finnst útlitiið svo flott bara.. þó að minn banner sé ekki á því.
Ég hef verið að færa nokkrar af undirsíðunum og linkunum hingað, ég á samt líklega eftir að breyta einhverju í um mig og vinirnir eða eitthvað, sjáum bara til.
Ég blogga seinna, er að fara með mömmu og pabba og kannski Söru út á Mýrar að taka einhverjar myndir. Kannski keyri ég bara til baka :P
Urður María