Привет!
Ég ákvað að blogga í TextEdit í staðin fyrir að þurfa að fara inná sal með öllum busunum til þess að komast í net. Það er að verða dáldið bögg að hafa ekki net á herbergjunum. Allavega okkar megin í byggingunni. Ég skil ekki afhverju var verið að taka af okkur netið. Ekki gott fyrir fólk sem er aðallega í fjarnámi og p-áföngum og þarf að vera á netinu til að læra. En enívei..
Ég er rosa dugleg í dag. Allavega í rússnesku. Vaknaði kl. 7 til að gera þemaverkefnið sem við áttum að skila 14. nóvember (betra seint en aldrei?) Var meira að segja önnur eða þriðja til að skila! Nokkuð gott.. eða nokkuð slæmt eiginlega. Við erum rosa rosa leiðinlegur hópur fyrir kennarann. Eeen svo er ég að hugsa um að gera þýðingarverkefni nr. 2 í dag! Var að klára eitthvað frekar létt 1.bls þýðingarverkefni úr kennslubókinni svo að ég er full sjálfstraust til að byrja á sögunni sem við eigum að þýða. Það er samt allt í lagi. Sem betur fer er þetta jólasaga fyrir börn :) Með fullt af myndum og dóti svo að þetta ætti ekki að vera svo slæmt.
Ég er að hugsa um að fara að taka fleiri myndir og video af lífinu hérna á vistinni. Það hafa næstum engar myndir verið teknar síðan Sara fór. Ég held að hún hafi algjörlega haldið þessu uppi. Annars er svo ógeðslega gaman að skoða video af öllum seinna. Það eru fleiri farnir að hanga meira með okkur sem við eigum voða fá video og myndir af svo að það er ekki seinna vænna að byrja að taka myndir! Ég get byrjað á því að fara inn í hitt herbergið og tekið video af Sigga litla að lúlla uppi í rúmi og Búa að spila tölvuleik... eða komið inn í herbergi til strákanna og tekið mynd af Ása og Palla að spila Æsvindeil (Icewind dale?) ég næ aldrei almennilega hvað hann heitir.. en ég er í honum! Ási og ég bjuggum til karakter sem er ég :D Ég er sko róg og lem alla í klessu! Ég er líka tvisvar í wow! Palli á mig í wow og svo bjó Ási mig til líka um daginn. Og ég á pet sem er dreki og heitir Ásgrímur og svo á ég bráðum annað pet sem heitir Sara... enjá... þegar ég fer að hugsa um það, afhverju að taka video af þessum tölvum? Ekki það að ég eigi eftir að gleyma þessum blessuðu tölvum einhverntíman -.-"
Annars fór helgin ekki í neitt. Hún hvarf bara. Ég hékk í tölvunni og lærði varla neitt. Fór reyndar einu sinni í tónskólan en gekk ekkert vel og fór svo á bandýæfingu sem gekk ekkert það vel þegar ég hugsa svona út í þetta seinna. Ég er að hugsa um að koma á æfingu á morgun og fara ekkert á fimmtudaginn. Nenni ekki að vera með enn fleiri marbletti.. passa voða vel við kjólinn sem ég verð í á 1. des á föstudaginn. Við erum samt alveg að gefast upp að fara á þetta ball. Það er orðið hundleiðinlegt að fara á 16 ára böll. Það er ekkert nema blindfullir litlir krakkar rúllandi um gólfin. Það er ekki lengur gaman, sérstaklega þar sem ég nenni ekkert mikið að drekka mikið lengur svo að ég man eftir öllu og sé allt.. Sem er ágætt á öðrum böllum og svona. En já.. þannig að við ætlum bara heim eitthvað öll og chilla bara ;) Þetta er btw í fyrsta skipti sem ég fer á árshátíðina! Hef alltaf, eða allavega tvisvar, farið á 1. des ballið en aldrei borðhaldið. Mér finnst bara ekkert svo gaman að klæða mig upp í fín föt.. Mér finnst geðveikt að vera milli-fín-klædd en ekki rosa rosa fín.
Við Hrefna Rún ætlum að reyna að koma heim laugardaginn 13. desember. Við erum báðar búnar í prófum 12. desember en nennum ekki að leggja af stað alveg þá.. þurfum alveg tíma til að pakka niður sem ég á ekki eftir að hafa mikið af þar sem ég þarf að læra undir líffræðipróf! Annars verður seinasti hlutinn ekkert mál held ég :P Helmingurinn af þessu eru skynfærin sem ég er btw búin að læra í 2 áfögum áður (SÁL213 og smá í LIM113). Plús að ég skrifaði ritgerð í SÁL213 um augað svo ég ætti að vera nokkuð seif.
Það eru 30 dagar í jólin! og 1. í aðventu er á sunnudaginn!!!! Ég ætla að búa til aðventukrans úr blómakertastjökunum sem ég keypti i Tiger þegar ég var í Reykjavík og fullt af eplum og mandarínum. Eplarínukrans!
Hlakka ekkert smá til að koma og fá mér brauðstangir í Söluskálanum og allt það :D