Atburðarteljari

Auglýsing

Jólin!

8D

For you, Sara, a thousand times over!

11. október 2008 klukkan 23:22

Ég var víst búin að lofa að blogga einhverntíman við tækifæri og hér kemur það! 

 

Hrefna Rún Kristinsdóttirer að reida og híla og sömmona og á fullt af mana og stamína

 

Urður singúlsjottaði pettið hennar Hrefnu og ætlar pottþétt að djójna nýtt gild! 9:45pm

 

Hrefna Rún Kristinsdóttir at 10:24pm October 11

Já, ég er líka að pæla í að djojna nýtt gild. En ætti ég að púlla restina af instansinu?

Urður María Sigurðardóttir at 10:25pm October 11

já en geturu gefið mér blessing og visdom fyrst? Og kannski hílað mig í leiðinni.

Hrefna Rún Kristinsdóttir at 10:26pm October 11

Æ, ég þarf að mæna fyrst.

Urður María Sigurðardóttir at 10:26pm October 11

Ég þarf að aggróa allt herbergið!

Hrefna Rún Kristinsdóttir at 10:27pm October 11

Ég er að mæna... í berform!

Urður María Sigurðardóttir at 10:29pm October 11

Ég drap bossann og opnaði herbergið. Ohh núna er ég out of mana.

Hrefna Rún Kristinsdóttir at 10:32pm October 11

Haha! En ég þarf líder. Áts! Plís sjíldaðu mig!

Urður María Sigurðardóttir at 10:36pm October 11

Ohh og ég sem var nýbúin að kasta híl á þig. Æ ég er ekki róg... ég er að hugsa um að tanka þetta ekki...

Hrefna Rún Kristinsdóttir at 10:37pm October 11

Heyrðu ég er byrjuð að tanka líka. Nennirðu híla pettið mitt þá? Hvað eru þessir drúidar að gera hérna?! Ert þú með tjardsið? ÉG VIL EKKI ÞORNS! GEFÐU MÉR BÖFFIÐ!

Urður María Sigurðardóttir at 10:38pm October 11

Ég skal gefa þér böffið ef þú gefur mér mark of ðe væld. Á ég að rejúna þorns á þér?

Hrefna Rún Kristinsdóttir at 10:40pm October 11

Djöfull fíraði ég paladínana. En bossinn er auðveldur, nennirðu að híla hann bara?... á hvaða leveli ert þú?

Urður María Sigurðardóttir at 10:43pm October 11

Er alveg að komast á level sextíu og níu. Sko hann stönnaði akkúrat þegar ég var að klára hílíð mitt áðan. Haha ég tankaði hann... ÓVND!!

 

Við Hrefna Rún erum staddar niðri á sal að hanga í tölvunni. Ekki það að okkur langi það neitt sértaklega en það vill bara svo til að þessir svokölluðu vinir og viðhengi okkar eru fastir í wow.. Þeir allir nema Ási voru fram undir morgun í gær í tölvunni. Árni Óla er á vakt og er alltaf að kíkja annað slagið inn til þeirra.. ég held að hann hafi áhyggjur af geðheilsu þeirra. Annars erum við Hrefna Rún orðnar verulega leiðar á að hanga og gera ekkert. Skruppum aðeins í tónskólann áðan og svo fórum við öll saman út að borða í Söluskálanum. 

Það er alveg ótrúlegt að hlusta á þá (Ása, Sigga, Palla, Búa og einhvern Benna sem er með þeim í WoW). Þeir tala mjööög mikið upphátt og eru víst að spila eitthvað saman. Við Hrefna Rún vorum líka alveg eins töff og þeir og áttum þetta samtal á facebook: 

 

Annars er þetta örugglega eina opna helgin hérna á vistinni alveg fram að prófavikunni! Shitt.. vistin er að breytast í fangelsi! Aaaallavega.. Það er loksins búið að ákveða hraðbrautarferðina!! Við förum til Krakow í Póllandi 30. okt - 3. nóv!! :D vúhÚ! Skoðum Auschwitz (hvernig sem það er skrifað) og eitthvað fleira. Reyndar erum við Hrefna Rún búnar að ákveða að sleppa bara að borða í ferðinni... það er svo ógeðslega dýrt að kaupa evrur :/ 

Ég er í svo ógeðslega litlu bloggstuði að ég held að ég láti þetta vera nóg í dag.. ég reyndi allavega að blogga!!! 

Hehe, snilldar video: Allir sem eiga eða hafa átt kött ættu að þekkja þetta....

http://www.youtube.com/watch?v=w0ffwDYo00Q
http://www.youtube.com/watch?v=s13dLaTIHSg
http://www.youtube.com/watch?v=4rb8aOzy9t4 

ný gullkorn !!!!!!!!! :P 

Aww. Titillinn á þessu bloggi var nóg fyrir mig!!

En bíddu bíddu. Fæ ég ekki að vera með í tíminu ykkar? Ég vil líka híla og allt það! Svo get ég kannski krittað ykkur!
En í alvöru, hvernig nenntuð þið að rifja upp öll þessi orð? Það eru meira að segja einhver ný þarna! Haha!

En já, Pólland verður æði! Og ég á 120 evrur sem ég fékk nokkuð ódýrt! Hvað ætli það dugi lengi?
Reyndar getið þið ekki einu sinni reynt að kaupa evrur í dag, hvað þá ódýrt! Það er ekki hægt að versla með gjaldeyri þessa dagana. Úff ...
#1
12. október 2008 klukkan 03:50
Flottur banner!

Hey, langar þig ekki að búa til nýjan banner fyrir mig? Þú ert svo góð í þessu!
#2
31. október 2008 klukkan 00:24

Skrifa athugasemd