Atburðarteljari

Auglýsing

Jólin!

8D

Iðjuleysi er rót alls ills

10. mars 2008 klukkan 10:04
Ég er gjörsamlega vonlaus námsmaður! Ég er núna búin að hafa 4 vikur til að byrja á 5 bls. söguritgerð. Ég hef ALLAN tímann í heiminum þar sem ég er bókstaflega ekki að gera neitt í skólanum. Sit hérna ein í 18 einingum, þar af 6 í p og 2 í listaáfanga sem þýðir EKKI GERA NEITT. Eins og málshátturinn sem ég fékk á síðustu páskum (og hengdi upp á vegg hjá mér, mér til viðvörunar) þá er "Iðjuleysi rót alls ills!" Ó já, þetta iðjuleysi er að gera mig vitlausa. Ég er farin að stara út í loftið heilu og hálfa dagana. Ég er búin að horfa á tæpar 4 seríur af Friends á 2 vikum og náð að toppa trivia og sitja þar í 1. sæti í heila viku... og það með yfir 1000 stigum á undan næsta á eftir mér. Ójá, ég á mér ekkert líf. Og þetta örfáa sem ég þarf nú að læra heima kem ég mér bara ekki í að gera! Vá.. og ég sem er búin að vera á fullu síðustu 4 annir (fyrsta önnin var líka leti) í 25 einingum og öllu hinum og læra og læra og læra og læra. Ég held að þetta verði hálfléleg önn, einkunarlega séð. Nema í íslensku :P Og svo fjarvíddarteikningu... sama hvað ég geri í þessum blessuðu listaáföngum þá fæ ég alltaf 9. Svona er ég nú heppin að vera alltaf í tímum með fólki sem nenna ekki að gera neitt í tímum af því að þetta er "bara listaáfangi".


Ég held að ég þurfi að redda mér vinnu á næsta ári, eða einhverju fleiru til að gera fyrst skólinn er ekki nóg fyrir mig.. kannski ég byrji bara að æfa á fiðlu aftur? Mig langar geðveikt til þess :P Kannski taka hlé á píanóið.. eða nei ég get ekki hætt... Og svo verð ég í gettu betur (úff, hvað verður um gettu betur.. allir eru að útskrifast..) og svo kannski hugsanlega býð ég mig fram sem formann MME.. hver veit. Haffi var allavega að reyna að fá mig til þess. Mig langar allavega að vera með í Morfís en ég veit ekki hvort ég gæti verið með að keppa.. ég er svo ótrúlega ósannfærandi, allavega vinna allir mig í rifrildum >.<

Páskafrí eftir 5 daga :D Jei! - ég vil fá strumpapáskaegg!
Þið munið eftri því að kíkja reglulega á gullkornin! Það eru alltaf fleiri og fleiri að bætast við (allavega á meðan við umgöngumst Magnús Búa og Leif... þaðan koma gullkornin)
 
Siggi Max
Tetta hljomar soldid svona eins og ad idjuleysin se eithvad ad hrja tig? Tu vilt aldrei hlusta a mig, hvernig vaeri ef tu byrjadir bara ad spila eve, eda wow. Eda kannski byrjadir ad horfa a stargate. Kannski jafnvel bua til tinn eigin Warhammer her, tad tekur langan tima ad setja allar figurunar saman og mala taer.
#1
10. mars 2008 klukkan 11:29
Urður MaríaÞað væri reyndar geðveikt gaman að setja svona dót saman og mála.. en ég veit ekki hvort ég myndi nokkurn tíman hafa áhuga á Warhammer ;) Bara dóteríinu í kringum það ;p
#2
11. mars 2008 klukkan 10:41
 
Siggi Max
Ok kannski ekki warhammer. Hvad med svona lestamodel? Tu byrd til svona landslag med fjollum og fljotum og lestargongum og svo setur tu lestarteina og svo nattlega lestina og ta getur tu leikid ter med tad ALLAN daginn! skipulagt ferdir fyrir litla kallana sem tu byrd til sem aetlar ad taka lestina. Tad er ofursnjallt!
#3
12. mars 2008 klukkan 07:20
Urður Maríaúúú kúl. Það er frekar töff.
#4
12. mars 2008 klukkan 12:16
Ég vil að þú bjóðir þig fram sem formann MME. Ég skal meira að segja finna undirskriftir fyrir þig! Það væri bara kúl! :) Ég sé eiginlega eftir því núna að geta ekki verið á næsta ári í svona fáum einingum og gera eitthvað þannig, vera meira með í félagslífinu, en ég finn mér eitthvað annað skemmtilegt að gera :)
#5
15. mars 2008 klukkan 14:17
Hvar fær maður svona módel?! :O Ég vil svona módel!
#6
15. mars 2008 klukkan 14:20
Ah, hvað ég myndi ekki gera fyrir smá iðjuleysi, ég er gersamlega að sturlast úr iðjuleysisleysi..erm, já.

Þegar þú segir að þú hefðir kannski áhuga á dótinu í kring um warhammer meinarðu þá svona backroundsögu og þannig? Það er nefninlega aðal fúttið við warhammer finnst mér, bókmenntirnar, artworkið og conseptin á bak við þetta allt saman. Ég hef sjálfur voðalega lítinn áhuga á því að spila sjálft spilið, en ég á alveg heilu bókahyllurnar ef lesefni *hinthint*.

Siggi Max, spilar þú 40.000 eða Fantasy?
#7
21. mars 2008 klukkan 21:33
 
Hrefna Rún
Auðvitað á Urður að bjóða sig fram. Ég myndi reyndar ekki kjósa hana, en maður á alltaf að reyna.
Og annað-

"Iðjuleysisleysi"!!?!
AAAAAAAAAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA.


(Er ég ein um að finnast ógeðslega fyndið að segja AHAHA-ið með rosa stórum stöfum eins og ég sé að sturlast úr hlátri, en láta það síðan enda á einum punkti?)
#8
22. mars 2008 klukkan 16:24
ERT ÞÚ AÐ TALA UM AÐ VERA VONLAUS NÁMSMAÐUR???????!!!!!!!!!!!!!!!????????????!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!????????????!!!!!!!!!!!!!

HVAÐ ER ÉG þÁ?????????!!!!!!!!!!!



(SKILABOÐ TIL SÖRU: LEMDU SYSTUR ÞÍNA!!!!!!! A.M.K. 30 sinnum á dag frá mér frá deginum sem þú sérð þetta!!!!(mér er alvara!!))
#9
22. mars 2008 klukkan 22:43
 
Siggi Max
Eg spila fantasy, eg hef tvi midur ekki kynnt mer mikid sogurnar i tessu spili, en mer aedilsega gaman ad lesa fantasy sogur =)

Og ja Hrefna Run, tu ert su eina sem finnst fyndid ad skrifa ahahaha med storum stofum svo tad litur ut eins tu sert ad sturlast ur hlatri og svo enda tvi med punkti (PUNKTUR)
#10
23. mars 2008 klukkan 10:30
Urður MaríaJú Hrefna, þetta er ógeðslega fyndið :D En ekki fyrr en þú lofar að kjósa mig ef ég býð mig fram :@
#11
25. mars 2008 klukkan 19:42
Urður MaríaHAHA Magnús Búi!!! Sara lamdi mig aldrei!!!!!

Úps.. um leið og ég byrjaði að skrifa þetta lamdi hún mig 30 sinnum í öxlina :'(
#12
25. mars 2008 klukkan 19:43
 
Sara Björk
Magnús Búi, ég er búin að lemja Urði 30 sinnum á dag frá og með þeim degi þegar ég sá þetta (sem var fyrir sirka 5 mínútum)

Hey, Siggi, ertu búinn að lesa margar Discworld?
#13
25. mars 2008 klukkan 19:45
 
Siggi Max
eg er bara buinn ad lesa tvaer. byrja alltaf aftur og aftur a tridju en gleymi svo alltaf ad lesa i henni...
#14
30. mars 2008 klukkan 03:38

Skrifa athugasemd