Atburðarteljari

Auglýsing

Jólin!

8D

Oh the cow in the meadow goes

03. mars 2008 klukkan 10:28
Kannski ef ég blogga svona í alvörunni að ég fái einhver komment. Hver veit?

Fyrst ætla ég að byrja á því að óska Sigga Max til hamingju með afmælið :D :D Og ég vona að þú farir að koma á MSN því við höfum ekki heyrt í þér svo svakalega lengi og vitum ekkert hvernig gengur þarna í Vestur-Ástralíu. Ég vona að þú fáir nóg að borða samt ;) ;)


Allavega... þetta er bara búin að vera ágætis helgi þótt við höfum ekki komist til Hafnar :@ Það var snjór og dót á leiðinni og engin af okkur sem nennti (eða gat) keyrt alla leiðina í leiðinlegri færð. Ég meiddi mig nefnilega í hnénu á síðasta mánudag og ég get alveg keyrt en ég verð mjög þreytt í fætinum ef ég er að keyra eitthvað langt... Ég prófaði það á fimmtudagskvöldið allavega. Barkinn var nefnilega á fimmtudaginn vegna þess að fyrir nokkrum vikum þegar hann átti að vera þá var veðrið of vont til þess að Björgvin Frans og Páll Óskar kæmust. Fimmtudagsböll eru samt bara skemmtilegri en ég ímyndaði mér :) Það var eins og að hafa 2 föstudaga í röð!! Sérstaklega kannski af því að ég er bara í 1 tíma á föstudögum svo að ég er eiginlega með 3 daga helgarfrí :D
Af því að ég meiddi mig í fætinum og var á verkjalyfjum datt mér í hug að það væri ekkert sniðugt að gera eitthvað af mér á balli svo ég ákvað að verða driver. Reyndar þurfti ég það ekkert endilega þar sem það var alveg slatti af okkur ekki að drekka. Allavega, fyrst fórum við á Barkann sjálfan. Húsið opnaði klukkan hálf 6 sem þýðir "rétt eftir skóla", allavega hjá Hrefnu Rún sem var búin kl. 5 og rétt náði að komast í sturtu áður en við fórum. Við ætluðum nefnilega að koma aðeins við og fá okkur að borða, og Sara ætlaði að mæta fyrr vegna þess að hún var að taka myndir. Egill hringdi í hana og hún fékk frítt á Barkann og ballið fyrir myndirnar :D (myndirnar, allavega ein af hverjum keppanda , er hér: http://picasaweb.google.com/sarabjork/Barkinn). Á milli hálf 6 og hálf 7 (þegar Barkinn byrjaði) var ég semsagt úti að keyra. Fyrst fór ég að borða út í Söluskála/Hraðbúð með Hrefnu Rún, Söru Björk og Eiríki og svo skutlaði ég honum heim svo hann gæti skipt um föt og málað sig og Söru og Hrefnu út í Fellabæ. Beið svo eftir honum þangað til hann var tilbúinn og þá fórum við út í Fellabæ. Mættum aaaðeins of seint en misstum ekki af nema smá úr fyrsta laginu.

Úrslitin voru semsagt svona:
1. sæti: Hrafnhildur Baldursdóttir: Litli tónlistarmaðurinn - Björk
2. sæti: Katrín Huld Káradóttir: Vetrarsól - Björgvin Halldórsson
3. sæti: Hafþór Þórarinsson: I Alone - Live
Áhugaverðasta atriðið: Dagrún Drótt, Bergljót Halla og Kolbjörg Lilja: Ég ættla að verða eins og Britney Spears - Sniglabandið og Nylon
Vinsælasti keppandinn: Tinna Björk Guðjónsdóttir: Pride (In The Name Of Love) - U2
Ég er mjööög sátt við hver vann!.Katrín var í 2. sæti. Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá fannst mér þetta ekkert sérstakt. Hún hefur rosa flotta rödd og er mjög lagviss, en það vantar þetta extra special dæmi sem Hrafnhildur hefur greinilega, ásamt fleirum sem ekki fengu sæti í keppninni. Mér var allavega farið að leiðast þegar lagið var rétt nýbyrjað. En vá lagið sem var í fyrsta sæti var flott! Það hentaði henni bara gríðarlega vel, og lagið sjálft er mjög gott. Ég hlakka til að heyra það aftur í söngkeppni Framhaldsskólanna í vor :D Svo fékk Hafþórarins loksins sæti! Hann hefur keppt í held ég öllum Börkunum síðan ég byrjaði í skólanum allavega og staðið sig vel. Það kom engum á óvart að Britney væri athyglisverðasta atriðið, það var bara eitt athyglisvert atriði í þessari keppni og það var þetta. En þótt það hefðu verið 100 þá hefði þetta samt unnið! Þetta var mikið flipp allavega :P
Ég er ekki viss um vinsælasta keppandann.. sko það var símakosning en ég kaus ekki. Ég hefði ekki kosið hana hvort sem er. Ég held að ég hefði kosið Böggu. Þetta var rosalega flott og kraftmikið hjá henni!

Ballið var svo mjög skemmtilegt. Byrjuðum á því að vera úti í Fellabæ í smá partýi þar sem Stebbi vinnur stundum. Allavega, þá vorum þetta bara við vinahópurinn. Reyndar fjölmennara en vanalega þar sem Ási, Palli og Freyr voru þarna með okkur! Allavega, fyndið kvöld :)

Svo kom föstudagurinn og það var eins og að hafa föstudag nr. 2 :D Reyndar leiddist okkur eiginlega alla helgina! Hrefna stakk upp á því að við færum í snú snú en vo áttuðum við okkur á því að ég var með bilað hné. Já og svo höfðum við engan spotta. Þá urðum við að leita að einhveru örðum. Uppástunga kom fram um að við færum bara saman í sturtu kom upp svo við gerðum það. Jább, við Hrefna Rún fórum saman í sturtu - í fötunum! Það var soldið blautt. En mjög gaman :) Það er mjög óþægilegt að vera með gleraugu í sturtu. Og skrítnasta tilfinningin var að vera í sokkum líka. Einhverrra hluta vegna þá var eiginlega ekki skrítið að vera í buxum og peysu. En já. Það var stuð.

Ég er gjörsamlega komin með Friends á heilann. Þetta eru allt of ávanabindandi þættir!!!!! Ekki nóg með það þá er ég syngjandi lögin hennar Pheobe allan daginn. Þau eru btw SNILLD!!! Smelly Cat og Barnyard Animals FTW!!

Oh the cow in the meadow goes "moo".
Oh the cow in the meadow goes "moo".
Then the farmer hits him on the head and grinds him up and that's how we get hamburgers.
Gullkornin eru snilld! Allir að kíkja á gullkorn :)
#1
05. mars 2008 klukkan 09:56
 
Hrefna Rún
Já, alvöru blogg er málið. Ekki eitthvað copy-paste. En já, ég var sátt við allt sem viðkom Barkanum, neima einmitt vinsældarkosninguna þarna. Veit ekki með það. Svo steingleymdi ég að blogga um sturtuna okkar!! Uss. Eins og hún var nú sniðug.
#2
05. mars 2008 klukkan 09:57
 
Siggi Max
Tad er alltaf ad tala um ad George Bush eda Bill Gates seu utsendarar djofulsins. Eg er osammala, tad eru friends taettirnir, og allir sem koma nalaegt gert teirra, sem eru utsendarar djofulsins. Alveg klart mal.

Verdid ad finna einhverja leid til tess ad setja barkann a netid, svo eg geti horft a hann....
#3
06. mars 2008 klukkan 08:36
Urður MaríaÉg fattaði bara á staðnum að ég hefði getað tekið með mér myndavél og tekið video og sent þér! En ég gleymdi því. Fyrirgefðu.

Og hey! Friends eru víst góðir og þú líkir þeim ekkert við Bush!
#4
06. mars 2008 klukkan 13:33
 
Siggi Max
Eg var ekki ad likja friendstaettina vid Bush.
#5
07. mars 2008 klukkan 01:59
Urður MaríaÉg skil þetta núna eftir að þú útskýrðir þetta betur fyrir mér :)
#6
07. mars 2008 klukkan 16:22
Hey, ég fann einhver video frá Barkanum á youtube.

http://youtube.com/results?search_query=barkinn&search_type=

Reyndar komið meira en þegar ég fann þetta um daginn.
#7
07. mars 2008 klukkan 16:24

Skrifa athugasemd